2.5.2007 | 01:16
Kynbundinn launamunur
Bendi á frábært blogg Guðfinnu Bjarnadóttur um kynbundinn launamun. Öfgalaus og vönduð nálgun þar sem markmiðið er að vinna að lausn vandamálsins en ekki að vera með upphrópanir. Mættu fleiri sjálfskipaðir fulltrúar kvenna í jafnréttismálum taka Guðfinnu sér til fyrirmyndar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.3.2007 | 19:39
Enginn her öflugasta hernaðartaktík 21. aldarinnar?
Ég hef ágætt álit á Birni sem stjórnmálamanni og hef oft kosið hann. Hann er vinnusamur og með sterkar skoðanir sem maður er einfaldlega annað hvort sammála eða ósammála. Ég er ósammála þessari.
Ég tel að íslenskur her (þetta er ekkert annað) sé ekki góð hugmynd. Hann talaði um að við gætum þá kallað út þúsund manna lið á launum. Þetta á að kosta 200 milljónir í upphafskostnað og rúmar 200 milljónir á ári eftir það. Það mætti gera margt þarft fyrir þann pening, t.d. að efla björgunarsveitirnar. Þær eru alltaf til taks en auðvitað óvopnaðar. Síðan höfum við lögregluna sjálfa sem er einnig óvopnuð og loks sérsveitina sem er vopnuð.
Ég var fylgjandi því að efla sérsveitina á sínum tíma til að taka á alls kyns vitleysingum sem eru í umferð og til að tryggja að almenna lögreglan verði ekki búin vopnum. Daginn sem það gerist mun margt breytast á Íslandi og ég er tilbúinn að leggja mikið á mig, þar með talið hæfilegt óöryggi til að til þess þurfi ekki að koma.
Ég er hins vegar algerlega á þeirri skoðun að það að við séum herlaust land veiti okkur tækifæri í alþjóðastjórnmálum til að taka frumkvæði t.d. í samningaviðræðum og friðarumleitunum sem við ættum frekar að beina athyglinni að heldur en að setja upp smáher. Ég held það sé spurning um grundvallarhugsun, þ.e. hvert við viljum stefna sem samfélag.
Nú hafa Bandaríkjamenn eytt milljörðum dollara í "stríðið gegn hryðjuverkum" og niðurstaðan er sú að heimsbyggðin hatar þá meira en nokkurn tímann áður og landið er í mun meiri hættu í dag en það var fyrir 11. september 2001. Það er hatrið sem skapar hættuna. Í dag eru "hermenn" ekki fulltrúar tiltekins ríkis heldur einstaklingar og smáhópar sem mjög erfitt er að henda reiður á.
Við munum aldrei geta komið í veg fyrir að maður sprengi sig á Lækjartorgi ef hann á annað borð vill það. Vörnin í stríði 21. aldarinnar snýst um að koma í veg fyrir að hann vilji það. Það er mun flóknara stríð sem hernaðarsérfræðingum 20. aldarinnar er að ganga mjög illa að eiga við. Kannski er besta vörnin fólgin í því að að rækta sambönd okkar við önnur lönd og önnur trúarbrögð annars vegar og því að það sé yfirlýst stefna okkar að hafa engan her. Kannski er það öflugasta hernaðartaktík 21. aldarinnar.
![]() |
Áhersla á heimavarnir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |