Framsókn og VG úr leik næstu 20 árin

Ef Sjálfstæðisflokkur og Samfylking fara inn í ríkisstjórn hefur hún slíkt fylgi að hún verður ekki kosin í burtu næstu 20 árin.  Þau eru með þvílíkan meirihluta að VG og Framsókn eiga ekki séns.  Það eina sem gæti sprengt stjórnina væri innbyrðisátök í flokkunum sjálfum.

Þetta vita Steingrímur og Jón og gráta nú að hafa ekki haft rænu á að höstla Ingibjörgu strax eftir kosningar.  Þeir eru því fastir í stjórnarandstöðu til ársins 2027 nema það verði enn lengur.


mbl.is Jón Sigurðsson: Staðfestir trúnaðarbrest milli Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skiptir engu máli

Það skiptir engu máli hver fær þetta umboð.  Það eina sem skiptir máli er hver myndar meirihlutastjórn.  Ingibjörg nennir ekki að vinna með Steingrími og félögum og því getur enginn myndað meirihlutastjórn nema Ingibjörg og Geir.

Ingibjörg er að reyna að gera sig svolítið breiða svo hún verði ekki bara aftursætisfarþegi hjá Geir.  Ef Sjallarnir og Samfylking fara inn í ríkisstjórn hafa þeir slíkan meirihluta að þeir verða ekki felldir í kosningum næstu 10-15 árin.  Steingrímur og Framsókn sjá því fram á að ef Ingibjörg og Geir mynda stjórn þá komist þeir ekki að kjötkötlunum fyrr en 2025.  Það er því mikið í húfi.

Kannski félag rauðhærðra ætti að halda námskeið í viðbrögðum við tapi... Fyrst Eiríkur og nú Steingrímur! Wink


mbl.is Liggur í augum uppi að Geir á að fá umboðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þarf maður ekki að vinna til að vera sigurvegari?

Það er ekki nema 3% munur á Framsókn og VG.  Hvernig er hægt að túlka VG sem sigurvegara kosninganna?  86% kjósenda vilja ekki VG.

Dæmi snýst ekki um það hvað þú fékkst í síðustu kosningum.  Á Íslandi er lýðræði þar sem meirihlutinn ræður og því er auðvitað sigurvegari kosninganna sá flokkur sem fékk flesta Íslendinga til að kjósa sig í ÞESSUM kosningum, þ.e. Sjálfstæðisflokkurinn. Þar á eftir koma Samfylkingin, VG, Framsókn, Frjálslyndir og loks Íslandshreyfingin sem rak lestina.  Það er tvennt ólíkt að ná markmiðum sínum eða vera sigurvegari kosninganna. 

Ef þú lendir í 18. sæti í formúlunni en stefndir á 17. sæti þá náðirðu markmiðum þínum en þú vannst ekki keppnina.


Er hægt að koma fyrir vefþjónabúum á Vestfjörðum??

Er hægt að koma fyrir vefþjónabúum á Vestfjörðum?  Þá værum við að fá fjöldann allan af spennandi störfum í fjórðunginn en værum laus við þessa rosalegu mengunarhættu.

Ekki spurning um hvort heldur aðeins hvenær verður umhverfisslys

Þetta er versta hugmynd sem komið hefur fram undanfarin ár. 

Þarna á að setja upp olíuhreinsunarstöð inni í firði á Vestfjörðum.  Þetta þýðir að komi olían frá Evrópu þá munu risaolíuskip sigla oft og skipulega í gegnum alla fiskimiði við Austurland, Norðurland og Vestfirði áður en þau koma í höfn og síðan aftur á leiðinni til baka.  Hin leiðin væri að taka syðri hringinn og sigla í gegnum alla fiskimiðina sunnan við landið og síðan vestan við. 

Komi olían frá Rússlandi sigla skipin í gegnum fiskimiði við Norðurland og Vestfirði og komi þau úr Vesturheimi renna þau í gegnum fiskimiði við Suðvestur- og Vesturland.  Þetta er svo mikil hætta að ég hreinlega trúi því ekki að nokkrum manni detti þetta í hug.

Ég á frekar von á því að olían komi úr austurátt en vestur og því væri hugsanlega hægt, vilji menn endilega gera þetta, að koma þessari stöð fyrir á Djúpavogi þar sem skipin kæmu beint að landinu og færu aftur beint frá landinu.  Að ætla að koma henni fyrir á Vestfjörðum er alveg fráleitt.


mbl.is Vesturbyggð fagnar hugmynd um olíuhreinsunarstöð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Björn Bjarnason með eitt mesta fylgi þingmanna þrátt fyrir útstrikanir

Sjálfstæðisflokkurinn fékk um 38% atkvæða í Reykjavík Suður. Hafi 20% kjósenda Sjálfstæðisflokksins strikað yfir Björn eru það um 8% kjósenda. Það þýðir að Björn er með 30% fylgi á bakvið sig.

Það er meira en allir þingmenn allra annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og reyndar á landinu öllu. Það er enginn þingmaður, utan Sjálfstæðisflokksins, með 30% á bakvið sig.

Björn hefur því fullt umboð til athafna þrátt fyrir að 8% kjósenda hafi hafnað honum.
Þetta finnst mér hafa gleymst í umræðunni.

Survivor ríkisstjórn - Verður Ingibjörg send heim??

Nú er Sörvævor ríkisstjórn í gangi og stutt í að einhver verði sendur heim.  Þá þýðir ekkert að sitja á hliðarlínunni heldur verður þú að leiða þróunina.  Spurningin er: Hver stendur upp sem sigurvegari?  Hver verður sendur heim? 

Mín óskastjórn

Ef ég fengi að ráða þá myndu Geir og Jón hætta þessu basli, loka sjoppunni og Geir hæfi viðræður við Ingibjörgu Sólrúnu.  Úr því yrði stór og sterk stjórn byggð á þeim gildum sem ég tel að virki fyrir Ísland, þ.e. blöndu sitt hvoru megin við miðjuna.  Að leggja af stað með núverandi stjórn er svipað og að vera kúbanskur flóttamaður á hriplekum bát á leið til Bandaríkjana.  Það gæti verið að þú kæmist yfir á bakkann hinum megin.  Þú veist hins vegar að vistin verður erfið, ert í stöðugri hættu á að hvolfa og það er enginn vissa fyrir því að þú verðir ekki bara sendur heim þegar þú kemst loksins á bakkann hinum megin.

Ingibjörg verður að stela stjórninni af Geir ef hún á að eiga skilið að verða forsætisráðherra

Vandamálið er að ef Ingibjörg fer í stjórn með Geir þá verður hún aftursætisfarþegi eins og Jón var.  Hún yrði ekki leiðtogi heldur einungis ein af ráðherrunum hans Geirs.  Samfylkingin væri því í aftursætinu hjá Sjálfstæðiflokknum eins og Framsókn var, með Vinstri græna geltandi og hlæjandi að þeim á hliðarlínunni.  Ég er ekkert endilega sannfærður um að þótt þetta sé stjórnin sem mér þætti best og væri örugglega landinu best að hún sé endilega Samfylkingunni og Ingibjörgu best.

Það sem væri best fyrir Ingibjörgu og Samfylkingu er að reka af sér sliðruorðið og stela glæpnum.  Hún þarf að taka frumkvæðið og stela sviðinu af Geir.  Hún þarf að taka frumkvæðið, fá Steingrím með sér og ná Jóni frá Geir.  Gera Jóni það ljóst að hann gangi endanlega frá flokknum dauðum fari hann aftur í stjórn með Geir.  Nú sé tími til að mynda algjörlega nýja ríkisstjórn með svipuðum áherslum og R-listann á sínum tíma.  Þar væri Framsókn nær því að vera í hópi jafningja en með Sjálfstæðisflokknum þar sem hann væri ekki bara "litli bróðir" heldur "pínulitlibróðir".

Jón þarf hins vegar að gæta þess að sýna hógværð sem ég held að myndi auka traust kjósenda á honum og flokknum sem ég held að fengi það til baka í næstu kosningum.  Hann á að gera Valgerði, Magnús og Guðna að ráðherrum enda hafa þau ágætisumboð úr sínum kjördæmum.  Hann á hins vegar að segjast ætla að einblína á uppbyggingu flokksins og endurskipulagningu.  Ef hann fer inn sem ráðherra með ekkert umboð þá munu kjósendur endanlega ganga frá Framsókn í næstu kosningum.

Ef Ingibjörg vinnur ekki fyrir forsætisráðherrastólnum með því að taka frumkvæðið s.b. hér að ofan þá á hún hann ekki skilið.  Ef hún fer ekki inn núna þá efast ég um að hún muni nokkurn tímann ná þeim stalli sem henni var ætlað að ná af Samfylkingarfólki og þá efast ég um að hún muni nokkurn tíma verða forsætisráðherra.

Dæmið snýst auðvitað ekki um það hver er með umboð til stjórnarmyndunar heldur um það hver myndar stjórn.  Ef Geir er með umboðið en enginn vill vera með honum þá getur hann ekkert gert.


mbl.is Steingrímur: Stjórnarmyndunarumboð liggur ekki á lausu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ótrúlega lágkúrulegt af Eiríki

Eiríkur var ekki nægilega góður í gær þótt hann sé almennt flottur tónlistarmaður og það er fjarri því að frammistaðan hafi átt skilið úrslitasæti eins og hann heldur sjálfur.  Lítil útgeislun, náði lítilli tengingu við myndavélarnar og í hlutanum sem var endurtekinn í tengslum við atkvæðagreiðsluna þá var hann daufur og kraftlaus.  Lagið var ágætt en stóð og féll með Eiríki sem tók það ekki alla leið.  Það er hins vegar auðvitað misjafnt hjá mönnum hvernig þeim gengur.

Það sem er hins vegar glatað er að koma tapsár og vælandi eftir keppnina, hrósandi sjálfum sér óverðskuldað en blammerandi alla aðra fyrir að hafa ekki staðið sig í að gefa sér stig.  Ótrúlega lágkúrulegt og Eiríkur setur verulega niður fyrir þetta.

Mér fannst öll bestu lögin í keppninni austur-evrópsk og það er mjög eðlilegt að þjóðir með svipaðan menningarlegan bakgrunn fýli betur tónlistina af sínu menningarsvæði auk þess sem undankeppnin var ekki send út í mörgum löndum Vestur-Evrópu eða þá að hún var send út á einhverjum smástöðvum, t.d. í Frakklandi.

Ef Austur-Evrópa er búin að taka þetta þá þýðir það að Austur-Evrópulögin munu raða sér í öll efstu sætin á morgun sem þýðir að við höfum fullt af Vestur-Evrópulögum í undankeppninni næsta ár sem ætti að koma okkur vel.

Eiríkur hafði ekkert á móti fyrirkomulagi keppninnar áður en hún átti sér stað og er hann þó sjálfskipaður sérfræðingur í henni.  Síðan er hún ómöguleg vegna þess að hann tapaði.  Glatað Eiríkur!


mbl.is Eiríkur: Samsæri austantjaldsmafíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áfengi í matvöruverslunum??? Að markaðssetja og af-markaðssetja

Mér finnst athyglisverð umræðan um sölu áfengis í matvöruverslunum.  Ég er sannfærður um að það eykur neyslu áfengis þrátt fyrir að mér sjálfum þætti það mjög þægilegt.  Ég er því á þeirri skoðun að það eigi EKKI að leyfa sölu áfengis í matvöruverslunum þar sem þá séum við að fórna stærra máli fyrir minna.  Ég tel að selja eigi áfengi í aðgreindum verslunum þannig að maður þurfi að "gera sér ferð" til að kaupa áfengi en geti ekki keypt það "í leiðinni".
Ég kaupi t.d. gos "í leiðinni".  Ég er algerlega sannfærður um að ég myndi drekka mun minna gos ef ég gengi ekki fram hjá því í búðinni.  Hver er munurinn á gosi og áfengi.  Gos er stórhættulegt, segja allar kannanir.  Pólitík gengur út á að ákveða hvar eigi að draga línuna þar sem heimurinn er ekki svartur og hvítur heldur misjafnlega grár.  Við leyfum gos alls staðar, höldum áfengi á hliðarlínunni en bönnum sterkari fíkniefni.  Þannig aukast höftin í réttu hlutfalli við væntan skaða.
Á ríkið að standa í búðarekstri
Hins vegar sé ég enga ástæðu til að ríkið reki verslanir, hvorki í ÁTVR né í flugstöð Leifs Eiríkssonar.  Mín skoðun er sú að leyfa eigi hverjum sem er að reka áfengisverslun en að það þurfi að vera í aðskildum verslunum, þ.e. ekki t.d. í matvöruverslunum.  Hver eru rök mín fyrir því?
Að markaðssetja og af-markaðssetja vöru
Þegar vara er markaðssett er reynt að hafa áhrif á söluráðana fjóra;
Verð - Vara - Kynning - Dreifing.

Verð: Það er reynt að hafa verðið ekki of dýrt fyrir markhópinn
Vara: Vöruna góða og í mörgum útfærslum
Kynning: Gera vöruna eftirsóknarverða með kynningu
Dreifing: Gera hana aðgengilega sem allra víðast með góðri dreifingu.

Þegar maður "af-markaðssetur" vöru hlýtur maður að fara öfugt að og það hefur verið gert í tilfelli áfengisins.
Verð: Verðið er dýrt
Vara: Tiltölulegar fáar og einsleitar vörur fást, þ.e. úrvalið er frekar takmarkað
Kynning: Auglýsingar eru bannaðar
Dreifing: Maður þarf alltaf að gera sér sérstaka ferð til að sækja það.

Niðurstaðan: Neysla Íslendinga á áfengi pr. mann hefur í gegnum tíðina verið minni en þeirra þjóða sem við almennt berum okkur saman við. Aðgerðirnar hafa því verið að virka.

Það kemur engum á óvart að innflytjendur á áfengi vilji leyfa auglýsingar, leyfa hverjum sem er að selja hvað sem er, lækka verðið og selja áfengi í matvöruverslunum. Þá er búið að hafa áhrif á alla fjóra söluráðana sem hlýtur að leiða til aukinnar neyslu á áfengi eins og á öllum öðrum vörum.
Bendi á athyglisverða skýrslu á vef Lýðheilsustöðvar: Áfengi - Engin venjuleg neysluvara

Gott fordæmi!

Gott hjá henni.  Góð fyrirmynd og gefur skýr skilaboð um það sem skiptir máli á meðan aðrir tala bara um nauðsyn þess að setja fjölskylduna í fyrsta sæti.
mbl.is Angelina vinnur bara dagvinnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband