Eins dauði er annars brauð

Framleiðsla á etanóli úr þessu trjáafgöngum í Svíþjóð er hið besta mál.

Það sama er hins vegar ekki hægt að segja um framleiðsluna úr maís.  Maís er grunnfæðutegund margra fátækustu þjóðfélaga heims.  Aukin notkun þess til etanólframleiðslu í Bandaríkjunum eykur eftirspurn eftir maís á heimsmarkaði og hækkar því verðið.  Þetta gerir það að verkum að þetta fátæka fólk mun ekki hafa efni á þessari grunnfæðutegund og eru afleiðingarnar ófyrirséðar.

Þótt þetta sé umhverfisvænt hvað snertir útblástur er það ekki umhverfisvænt hvað snertir ofangreind samfélög.

Það er vandlifað í þessum heimi...


mbl.is Heyra „bensínstöðvar“ brátt sögunni til?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Ætli við verðum nú að aka á kostnað matarkistu 3. heimsins.  Það eru nálægt 70-90%, sem falla af við maísrækt, blöð, stilkur, kjarni ofl. og er það notað eins og kvistir greinar, lauf, börkur og rætur trjáa eru nýtt í þessa framleiðslu.  Mér finnst það afar abstrakt að tala um hækkun matvælanna við það að fullnýta það sem áður var hent.  Það eru nú engir idíótar, sem standa að þessum vísindum.  En með vilja má sjá skrattann í öllum hornum, svo mikið er víst.

Jón Steinar Ragnarsson, 17.9.2007 kl. 23:50

2 Smámynd: Sigurður Viktor Úlfarsson

... og heldur þú að þessum afgöngum sé safnað saman við eldhúsborðið hjá 3. heimsfólkinu eftir að máltíð líkur?

Þetta eykur einfaldlega eftirspurn og því hækkar verðið.  Svo einfalt er það.

Sigurður Viktor Úlfarsson, 18.9.2007 kl. 00:35

3 Smámynd: Landssamtök hjólreiðamanna

Besta eldneytið í þéttbýli er að sjálfsögðu orka líkamans notuð á reiðhjóli.  Bílaborgir virka hreinlega ekki. Þetta hafa þeir skilið t.d í London, Paris, Stokkhólmi, Singapúr, Bogotá, Portland, (Oregon) og mun víðar.

Landssamtök hjólreiðamanna, 18.9.2007 kl. 00:47

4 identicon

Einmitt Sigurdur, Ethanol-eldsneyti er ekki lausn fyrir malid. Verdin á kjarnarfaedi munu haekka thannig ad folkid í vesturlöndum getur keyrt á bíl...

Haettum ad vera ad kjafta um CO2 (thad eru fleiri mál sem vanta okkur athygli!) og förum á reidhjóli hvenaer sem haegt er!

stefan (IP-tala skráð) 18.9.2007 kl. 09:23

5 Smámynd: Sigurður Viktor Úlfarsson

Rangt Stefán.

Umræðan um CO2 er mjög mikilvæg og mjög mikilvægt að finna nýir leiðir í orkumálum. Við þurfum einfaldlega að finna eldsneyti sem hentar. T.d. vetni eða metan. Metan dregur t.d. úr mengun tvisvar. Annars vegur kemur það í veg fyrir að mengunin stígi upp af sorphaugunum og hins vegar dregur það verulega úr útblæstri bíla. Það er því fín lausn. Nóg er til af sorpinu. Vetni er líka frábær lausn því mikið er til af vatni til að vinna það úr, hægt að eyma sjó og allt hvað eina. Einnig virðist þetta sænska etanól vera að virka þrátt fyrir að það sé ástæða til að setja spurningamerki við framleiðslu etanóls úr maís.

Sigurður Viktor Úlfarsson, 18.9.2007 kl. 11:50

6 Smámynd: Egill Jóhannsson

Sæll

Hér eru helstu staðreyndir um lífetanól E85 eldsneytið sem komu fram i viðtali við undirritaðan sem birtist í sunnudagsblaði Morgunblaðsins 9. ágúst síðastliðinn.

Vona að þetta svari einhverjum spurningum.

Kveðja

Egill 

Etanól verður í fyrsta sinn til sölu hérlendis á dælu hjá á eldsneytisstöð Olís við Álfheima mánudaginn 17. september. Dælan er á vegum Brimborgar en fyrirtækið stendur nú fyrir tilraunaverkefni varðandi notkun etanóls á bifreiðar á Íslandi. Eldsneytið sem um ræðir heitir E85 og verða fluttir inn 2.000 lítrar í fyrstu umferð. Brimborg en nú þegar búin að flytja inn tvær bifreiðar sem ganga fyrir þessu eldsneyti, þriggja dyra sportbílinn Volvo C30 og fjölskyldubifreiðina Ford C-Max.

"Við byrjuðum að vinna í verkefninu í nóvember 2006 en þá var engin vitneskja að ráði til í landinu um etanól. Við sendum fyrirspurn til Alþingis og þá kom í ljós að ekki hafði farið fram nein umræða um málið," segir Egill Jóhannsson, framkvæmdastjóri Brimborgar og forsprakki verkefnisins, en fyrirtækið sendi ítrekun til Alþingis í mars á þessu ári.

Brimborg fór í kjölfarið að afla sér nánari upplýsinga og komst að því að nágrannalandið Svíþjóð, land sem Íslendingar miða sig við á mörgum sviðum, er komið langt í notkun etanóls á bifreiðar. Svíar byrjuðu að prófa sig áfram með etanól upp úr aldamótunum, að sögn Egils.

"Boltinn rúllar mjög hratt hjá þeim og strax árin 2004-5 seldu þeir 2.000 etanólbíla á mánuði. Núna er talan komin upp í 3.000-3.500 bíla á mánuði en alls eru 70.000 etanólbílar á götum Svíþjóðar. Að sama skapi hefur etanóldælum fjölgað mjög hratt en núna eru þær komnar í tæplega þúsund," segir hann.

Eggið og hænan

"Hér hefur vandinn auðvitað falist í því hvar eigi að byrja. Hvort kom á undan, eggið eða hænan? Það vantar bæði bíla og eldsneyti og það þarf að byggja upp markaðinn," segir Egill en Brimborg leitaði eftir samvinnu við olíufélögin. Skeljungur og Olís skoðuðu málið, bæði tæknilegar hliðar og dreifingaratriði. Niðurstaðan varð sú að Brimborg flytur inn 2.000 lítra en Olís ætlar að sjá um sölu með því að skipta út einni venjulegri dælu í etanóldælu. Stöðin í Álfheimum er stærsta eldsneytisstöðin hjá Olís og er hún jafnframt mjög vel staðsett, miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu.

"Við kaupum etanólið en þeir eru sérfræðingarnir í því að dreifa eldsneyti." Egill segir að það hafi þurft að gera einhverjar breytingar vegna þessa en ekki verulegar. "Kosturinn við etanólið er að það er vökvi og því er nánast sömu aðferðafræðinni beitt við að dreifa því eins og bensíni. Það er til dæmis mun flóknara að dreifa vetni og metangasi."

Hugað að upprunanum

Nafnið E85 gefur til kynna að eldsneytið sé blanda en það er 85% etanól og 15% bensín. Er þetta sama blanda og notuð er á etanólbíla í Svíþjóð og Bandaríkjunum. Í Brasilíu, þar sem notkun etanólbíla er mest í heiminum, er notað E100, eða 100% etanól. Ástæðan fyrir því að E85 er notað hér er loftslagið en blandan virkar betur í kaldari löndum.

Uppruni eldsneytisins var mikilvægur í augum Egils. Etanólframleiðsla úr maís hefur verið gagnrýnd því við hana hefur heimsverð á maís hækkað, sem hefur bitnað á fólki í fátækum heimshlutum þar sem korntegundin er hluti grunnfæðu. Íslenska etanólið er því ekki framleitt úr maís heldur er það ættað frá Svíþjóð. "Eldsneytið er framleitt úr því sem til fellur við skógarhögg. Svíar eru stórþjóð í skógarhöggi og þar fellur til mikill lífmassi sem var áður ónýttur."

Hann segir að etanóleldsneyti teljist vera 97-98% umhverfisvænt. "Umframorka frá orkuverum er notuð til framleiðslunnar. Síðan fer út um pústið allt að því 80% minni koltvísýringslosun en frá sambærilegum bensínvélum."

Engar takmarkanir

Eftir því sem Egill hefur kynnt sér etanólið og etanólbifreiðar betur verður hann sannfærðari um að þetta eigi eftir að höfða til Íslendinga. "Bílarnir sem við völdum til kynningar sýna að í þessu felast engar takmarkanir," segir hann en valdir kúnnar fá að prófa bílana í fyrstu. "Annar kostur er að bílaframleiðendur þurfa aðeins að breyta hefðbundnum bensínbíl sáralítið til að hann geti einnig gengið fyrir etanóli," segir hann og bendir á að til dæmis felist meiri takmarkanir í notkun rafmagnsbifreiða og metangasbílar hafi sér gastank sem taki af farangursrými og því séu slíkir bílar oft síðri kostur fyrir hinn almenna borgara.

Bílarnir tveir sem Brimborg hefur nú þegar flutt inn eru svokallaðar "flexifuel"-bifreiðar. Það þýðir að líka er hægt að taka venjulegt bensín á bílinn. "Þetta er lykilatriði í upphafi, til þess að það sé auðveldara að innleiða þessa bíla á Íslandi. Í Svíþjóð byrjaði þetta líka bara með einni dælu."

Enn er mörgum spurningum ósvarað varðandi etanólið og etanólbifreiðar en svörin eiga eftir að skipta sköpum um framtíð slíkra bifreiða hérlendis. "Verðið verður að vera samkeppnishæft til að hinn almenni neytandi, sem ekki er sjálfur tilbúinn að eyða hundruðum þúsunda út af umhverfinu, kaupi bílinn," segir Egill en hann vonast eftir því að vörugjöld verði felld niður á þessa bíla líkt og metangasbíla. "Við sendum fyrirspurn til tollstjóra fyrir hálfum mánuði. Við vonumst eftir svari í mánuðinum, hugsanlega fyrir opnun dælunnar. Niðurstaðan skiptir gríðarlegu máli um fjölda etanólbíla sem við getum hugsað okkur að flytja inn."

Etanólið þarf að vera ódýrara

Etanólbílar teljast visthæfir bílar í Svíþjóð og geta eigendur þeirra lagt ókeypis í stæði í Stokkhólmi og Gautaborg, að sögn Egils. Í einhverjum tilfellum þurfa þó eigendur bifreiðanna að sýna kvittanir því til sönnunar að þeir noti etanól í miklum mæli á bílinn í stað bensíns. Samkvæmt skilgreiningu Reykjavíkurborgar teldust etanólbílarnir ekki visthæfir; þeir standast vissulega kröfur um mengun en ekki eyðslu. "Það er einn ókostur en etanólið virkar þannig að minna orkuinnihald er á lítra en í hverjum lítra af bensíni. Til að vera jafn vel settur varðandi kostnað þarf etanólið því að vera 25-30% ódýrara en bensín því bíllinn eyðir meira."

Sú er raunin í Svíþjóð þar sem Egill segir að bensínið kosti um 10 sænskar krónur lítrinn en etanólið 7-7,50 kr.

"Þegar Svíarnir byrjuðu með þetta var verðið svipað en síðan hefur etanólverðið farið lækkandi. Á síðustu árum hefur olíuverð hækkað á heimsmarkaði á meðan etanólið hefur staðið í stað. Ef eitthvað, þá hefur framleiðslu- og dreifingarkostnaður lækkað," segir Egill og bætir við að enn sé ekki komið á hreint hvað E85 eigi eftir að kosta hérlendis en Olís er að reikna verðið út núna fyrir Brimborg miðað við þær forsendur að innflutningurinn sé í raun meiri en þessir 2.000 lítrar.

Egill segir ennfremur áhugaverða spurningu hvort Íslendingar geti framleitt eigið etanól. Það sé ekki útilokað þegar markaður verði til staðar fyrir það. Meðal annars hafi Íslenska lífmassafélagið og einnig Háskólinn á Akureyri með Jóhann Örlygsson í fararbroddi unnið að rannsóknum hvað þetta varði.

"Með hverjum deginum verð ég bjartsýnni á að svona verkefni gangi upp. Það er að byggjast upp þekking í samfélaginu á etanóli. Þetta er bara spurning um tíma. Svona verkefni er samvinnuverkefni bílaumboða, olíufélaga og stjórnvalda. Stjórnvöld vilja auka hlut visthæfra bíla, nú þarf að standa við stóru orðin, koma þessu af stað. Það þarf að búa til markað en svo tekur markaðurinn bara við."

Egill Jóhannsson, 18.9.2007 kl. 22:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband