Kreppugrín

SmileHvernig skilgreinir þú bjartsýni í dag? Bankastarfsmaður sem straujar fimm skyrtur á sunnudegi.

Afhverju eru fasteignasalar hættir að horfa út um gluggan fyrir hádegi? Svo þeir hafi eitthvað að gera eftir hádegið.

Hver er munurinn á stjórnenda fjárfestingarbanka og dúfu? Dúfan getur enn sett mark sitt á Ferrari-bíl.

Fjármálakreppan hefur komið mér aftur á lappirnar. Það er búið að taka af mér bílinn.

Hvað segir þú við forstjóra vogunarsjóðs sem getur ekki selt neitt? Ég ætla að fá einn Big Mac með frönskum.

Á bar í Wall Street: "Þessi fjármálakreppa er verri en skilnaður. Ég haf tapað helmingi eigna minna en sit samt uppi með konuna.

Maður kemur að máli við bankastjóra sinn og segist vilja stofna smáfyrirtæki. Hvernig geri ég það? "Einfalt," segir bankastjórinn. "Þú kaupir stórfyrirtæki og bíður svo aðeins.

Hvernig skilgreinir þú milljónamæring?  Maður sem er nýbúinn að kaupa hlutabréf fyrir milljarð!


mbl.is Landsbankinn af hryðjuverkalista
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband