Gott mál! Ekki öll eggin í sömu körfu

Þetta er mjög gott mál.  Vægi álframleiðslu í efnahagslífi landsins, hvað þá heldur efnahagsreikningi Landsvirkjunar er orðið í það mesta og ef bæta á við þeim álverum sem eru á teikniborðinu verður vægi áls orðið of mikið.

Það er afleitt ef stór hluti efnahagslífsins, sem og Landsvirkjunar, sveiflast eingöngu með tilliti til álverðs.  Falli verð á áli þá gæti það haft veruleg áhrif ef við gætum ekki að okkur og setjum eggin í fleiri körfur.

Nú eru komin fram ný efni, t.d. kolefnisefnin sem notuð eru á flugvélar og eru bæði léttari og sterkari en ál.  Hvar er þá ál á líftímakúrfunni?  Verður ennþá sama eftirspurn eftir því eftir 30 ár?  Það er alls ekki víst.  Þá er eins gott að við veðjum ekki öllu á sama hestinn.


mbl.is Markmiðið að bæta efnahag Landsvirkjunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband