8.10.2007 | 12:48
Sorrý ekki hægt...borgarfulltrúarnir eru í fýlu
Ætli sjálfumgleði borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins komi í veg fyrir að við getum tekið þátt í þessu?
![]() |
Kínverjar vilja stórefla samvinnu við Ísland um jarðnýtingu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.10.2007 | 12:43
Dýrasta fýlukast Íslandssögunnar
Það er með ólíkindum hvað þetta fólk er ómerkilegt ef það ætlar að hætta við útrás OR vegna þess að það fékk ekki að vera með í viðræðunum.
Þetta sama fólk skipaði stjórn fyrir fyrirtækið til þess að sjá um málefni þess en ætlar nú að hafa af borgarbúum milljarða og hugsanlega tugi milljarða tekjur næstu árin og áratugina vegna þess að ÞEIM var ekki sagt frá þessu fyrr en búið var að komast að niðurstöðu hjá meirihluta stjórnar sem ÞEIR reyndar skipuðu sjálfir.
Það er með ólíkindum ef þetta verður niðurstaðan.
![]() |
Átti að vaða yfir okkur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.10.2007 | 23:44
Tilgangur OR samkvæmt lögum...Góð og slæm umræða
Góð og slæm umræða um þetta mál kristallaðist á bls. 8 í Fréttablaðinu í dag. Þar voru á sömu blaðsíðu þrír aðilar sem skrifuðu um málið. Jón Kaldal ritstjóri í pistli sínum, Illugi Gunnarsson þingmaður og Svandís Svavarsdóttir borgarfulltrúi.
Pistill Jóns var mjög góður og gaf yfirsýn yfir mismunandi skoðanir á málinu. Illugi kom einnig með rök og lagði þau fram skilmerkilega. Maður var einfaldlega annað hvort sammála honum eða ekki.
Svandís hefur hins vegar annan stíl. Þann leiðinlega stíl að leggja meiri áherslu á persónulegt skítkast, eitra andrúmsloftið og virðist hafa það að markmiði að gera hluti tortryggilega fremur en að ræða rök málsins. Hjá henni er allt spilling og sífellt verið að brjóta á henni. Þetta er afarleiðinlegur umræðustíll og drekkir rökum málsins í drama og persónulegum óhróðri og er þetta henni til minnkunar því annars er hún rökföst, kemur vel fyrir sig orði og ætti ekki að þurfa að beita þessum aðferðum til að fá athygli fjölmiðla.
Hennar umræða snérist fyrst og fremst um að það hafi verið karlar í stjórninni sem veittu öðrum körlum rétt til að kaupa hlutabréf o.s.frv. Af hverju var hún að ræða þetta? Hver var tilgangurinn? Þessir þrír karlar í stjórninni eru Bjarni sem er einfaldlega hluthafi í fyrirtækinu og kemur þarna inn sem einn af eigendum, stjórnarformaður og varaformaður stjórnar OR sem báðir voru lýðræðislega skipaðir í stjórn fyrirtækisins við stofnun þess.
Illugi ræddi hins vegar um þá grundvallarskoðun hvort OR ætti að taka þátt í þessari útrás yfirhöfuð sem opinbert fyrirtæki. Hvort hún ætti að leggja þessu verkefni lið eða hreinlega hundsa þau tækifæri sem eru í boði og láta aðra um að takast á við þau.
Í 2. gr laga 139/2001 um stofnun Orkuveitu Reykjavíkur er tilgangur fyrirtækisins útlistaður:
2. gr. Tilgangur Orkuveitu Reykjavíkur er vinnsla og framleiðsla raforku, varma og vatns, dreifing og sala afurða fyrirtækisins ásamt hverri þeirri starfsemi annarri sem nýtt getur rannsóknir, þekkingu eða búnað fyrirtækisins, sem og iðnþróun og nýsköpun af hverju tagi, ásamt annarri viðskipta- og fjármálastarfsemi samkvæmt ákvörðun stjórnar hverju sinni.
Heimilt er Orkuveitu Reykjavíkur að reka dótturfélög og eiga hlut í öðrum félögum.
Samkvæmt þessari skilgreiningu laganna eru stjórnendur OR að gera nákvæmlega það sem þeim er ætlað til. Þeir mega eiga dótturfélög og hluti í öðrum félögum, þeir mega taka þátt í "hverri þeirri starfsemi annarri sem nýtt getur rannsóknir, þekkingu eða búnað fyrirtækisins".
Vilji stjórnmálamenn vængstífa OR og láta fyrirtækið einungis sjá um að reka veitur innan sveitarfélaga eigendanna þá er það grundvallarbreyting á tilgangi fyrirtækisins samkvæmt lögum. Þetta er sú pólitíska spurning sem stjórnmálamennirnir eiga að vera að svara en ekki standa í persónulegu skítkasti gagnvart þeim einstaklingum sem eru að vinna vinnuna sína í samræmi við lagalegan tilgang fyrirtækisins. Ef það verður niðurstaðan þá vinna menn eftir því. Þangað til vinna menn eftir þeim lögum sem eru í gildi í dag og ber stjórn OR ábyrgð á því að framfylgja þeim og nýta þau tækifæri sem bjóðast innan ramma laganna.
![]() |
Þorgerður Katrín: Of geyst farið í samruna GGE og REI |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.10.2007 | 01:43
Sjálfsagt mál
Ótrúleg smáborgaraumræða er þetta að Ólafur megi ekki fljúga með þessum aðilum henti það báðum aðilum. Maðurinn þarf að komast frá A til B, er boðið far í þotu sem er að fara sömu leið, gefur honum tækifæri á að vinna á leiðinni og vera fljótari í förum en hann annars væri. Þar að auki er hægt að nýta það almanna fé sem annars færi í að skutla manninum milli verkefna í eitthvað annað.
Forsetinn núverandi og forsetaembættið alla tíð hefur alltaf aðstoðað íslensk fyrirtæki á vegferð þeirra um heiminn enda opna slík tengsl verulega leiðir inn á erlenda markaði s.b. Kína. Hann hefur því fyrir löngu síðan unnið fyrir öllum þeim flugferðum sem hann fær að sitja með í og skuldar engum neitt.
Af hverju í ósköpunum er fólk svona öfundsjúkt og smáborgaralegt? Hefur það virkilega ekkert þarfara að gera?
![]() |
Ólafur Ragnar flaug til Kína í boði Glitnis |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.10.2007 | 23:36
Öll lögin góð og vinna örugglega á
Lögin í kvöld voru ágæt og eiga örugglega öll eftir að heyrast á öldum ljósvakans. Fannst lagið hans Gumma líklegast til að standa út úr í Eurovision en þó var lagið hennar Fabúlu svolítið "músin-sem-læðist-lag og hefði getað komið á óvart - eins og Fabúla reyndar er.
Gott hjá RÚV að taka Eurovision og teygja það yfir allan veturinn í stað þess að kaupa eitthvað "franchise"-dæmi frá Ameríku eins og American Idol. Gerir sama gagn, er vinsælla sjónvarpsefni en nokkuð annað á Íslandi nema kannski Spaugstofan (þótt enginn viðurkenni að horfa á hvorugt) og er auðvitað íslenskt sjónvarpsefni. Ragnhildur og Gísli eru líka þægilega eðlileg, skemmtilega ólík en hvorugt fólk sem setur sig í einhverjar stellingar og getur því lifað lengi á skjánum.
Gott RÚV.
![]() |
Lag Guðmundar Jónssonar komst áfram |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.10.2007 | 12:37
Af hverju lágmark 33%
![]() |
Manneklu mætt með ráðningu eldri borgara í umönnunarstörf |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.9.2007 | 23:22
Heimurinn hlær!
![]() |
Íranska þingið lýsir CIA hryðjuverkasamtök |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
28.9.2007 | 12:08
Löngu ljóst...
![]() |
Ekki niðurstaða að mínu skapi" segir Sigurjón Þórðarson |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.9.2007 | 20:49
Ein af strákunum...
Nú er Hillary komin á fullt í því að afla sér stuðnings meðal herskárra Bandaríkjamanna sem telja að það að kona verði forseti muni stórskaða landið hernaðarlega og öllum peningum verði varið í "mjúku málin" en minna í hernað. Þetta er sterkur áhrifahópur innan Bandaríkjanna; herforingjar undanfarinna áratuga, samtök skotvopnaeigenda o.s.frv. Hún þarf því að sýna að hún sé fær um að vera "ein af strákunum". Vonum að hún geti stígið til baka eftir að hún nær kjöri og endi ekki hlaupandi um heiminn með byssu eins og Bush.
![]() |
Clinton staðfestir sögusagnir um kjarnorkuþróun Sýrlendinga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.9.2007 | 11:22
Oft ratast kjöftugum...
![]() |
Mugabe sakar Bush um hræsni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |