23.10.2007 | 21:03
Eru allir farnir að rannsaka
Til hvers var verið að stofna þennan stýrihóp til hliðar við stjórnina í því skyni að rannsaka REI ef stjórnin ætlar svo líka að fara að rannsaka REI. Það verður athyglisvert að sjá hvort stjórnin og stýrihópurinn komast að sömu niðurstöðu.
Af hverju var ekki bara skipt um stjórn, endanlegir stjórnarmenn komu inn í stjórnina með Sigrúnu sem stjórnarformann og rannsökuðu málið? Ef menn hefðu viljað hefði Björn Ingi getað gengið úr stjórninni til áramóta og sett Óskar inn í staðin sem varamann.
Þegar Sjálfstæðismenn tóku við stjórnartaumunum í OR eftir síðustu kosningar veltu þeir við hverjum steini og yfirfóru alla samninga. Nú kemur nýr meirihluti og gerir það aftur. Þetta er ekkert óeðlilegt þegar "eigendaskipti" verða við upphafs nýs meirihluta. Hins vegar kemur það á óvart ef bæði stýrihópurinn og stjórnin ætla að fara að rannsaka málið.
Mál sem ég held að sé ekkert mál. Ég held að þau muni ekki finna neitt skrítið og að menn komist að því að málið blés upp í réttu hlutfalli við innanflokksátök í Sjálfstæðisflokknum en ekki vegna málsins sjálfs. Það blés upp og olli tortryggni vegna þess að fulltrúum Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn fannst þeir ekki vera að fá nægar upplýsingar frá samherjum sínum í flokknum sem leiddu stjórn OR. Til að undirstrika sjálfstæði sitt tóku þeir u-beygju í afstöðu sinni til útrásarinnar og REI frá því sem áður hafði verið samþykkt í stjórn OR, á landsfundi Sjálfsstæðismanna (sjá að neðan) og af fulltrúum flokksins í Landsvirkjun og RARIK svo eitthvað sé nefnt.
Úr "Ályktun um umhverfismál og auðlindanýtingu" af landsfundi Sjálfstæðisflokksins 2007:
"Íslensku orkufyrirtækin eru í dag leiðandi þekkingarfyrirtæki Landsfundur fagnar aðkomu einkaaðila að útrás orkufyrirtækjanna."
![]() |
Stjórn OR mun rannsaka samruna REI og Geysis Green Energy |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.10.2007 | 18:40
Áfengi ekki í matvöruverslanir en allir geti rekið vínbúð
Mér finnst að skipta ætti frumvarpi Sigga Kára og félaga um sölu á áfengi upp í tvennt. Annars vegar HVER megi selja áfengi og hins vegar HVAR megi selja áfengi.
HVER: Mín skoðun er sú að það sé engin ástæða til þess að ríkið reki verslun (hvorki áfengisverslanir né t.d. fríhöfnina í Keflavík) og er þess vegna á þeirri skoðun að hver sem er eigi að fá að reka vínbúð.
HVAR: Hins vegar tel ég að ekki eigi að leyfa sölu á áfengi í matvöruverslunum heldur eigi það að vera selt í sérstökum áfengisverslunum.
Ástæða þess að ég tel að það eigi ekki að selja þetta í matvöruverslunum er að rannsóknir sína að þeir sem eru veikir fyrir áfengi drekka töluvert meira af því sé það í boði í matvöruverslunum. Mér finnst heilsa þeirra einfaldlega meiri hagsmunir en þeir að ég þurfi ekki að taka á mig nokkurra mínútna krók til að koma við í vínbúð vanti mig áfengi. Með því að leyfa sölu á áfengi í matvöruverslunum værum við því að fórna meiri hagsmunum fyrir minni.
17.10.2007 | 03:57
Ömurlegur málflutningur Gísla Marteins og félaga
Það var hreinlega skelfilegt að hlusta á borgarstjórnarfundinn í dag og heyra fulltrúa Sjálfstæðisflokksins með Gísla Martein í broddi fylkingar væla úr sér augun og tapa ærunni á því að reyna að klýna eigin skít á Björn Inga. Ætlar þetta fólk aldrei að viðurkenna að Sjálfstæðisflokkurinn en ekki Framsókn hefur leitt stjórn OR í nærri tvö ár?
Algerlega fáránlegt að koma fram með þessar ákærur vegna þess að Finnur Ingólfsson og félagar eiga um hálft prósent í REI. Hvaða rugl er þetta? Kristinn Björnsson fyrrverandi Skeljungsforstjóri á þarna mun stærri hlut og er eiginmaður fyrrum ráðherra og forseta alþingis Sólveigar Pétursdóttur. Telji Gísli Marteinn Björn Inga vera að ganga erinda Finns og félaga er þá ekki sjálfgefið að Gísli sé að ganga erinda Kristins og félaga? Auðvitað ekki en málflutningur Gísla Marteins undanfarna daga hefur gjörsamlega rúið hann trausti.
Ég kaus hann og "dvergana sex" í seinustu kosningum en það er ekki fræðilegur möguleiki að ég muni gera þau mistök aftur. Vona heitt og innilega að þessi hópur finni sér eitthvað annað að gera eftir næstu kosningar. Í dag og næstu árin verður þetta hópurinn sem klopraði frá sér Reykjavíkurborg með fádæma heimsku.
Bendi á fínt færslu um málið hjá Elfi Logadóttur sjá: http://elfur.blog.is/blog/elfur/entry/339429/
Tek það fram að vera bæði Finns, Helga S og Kristins Björnssonar í þessum fjárfestingum er fullkomlega eðlileg að mínu mati og mér þykir miður að vera að draga Kristin inn í þessa umræðu. Nýð Gísla Marteins gagnvart Birni gerir það hins vegar óumflýjanlegt.
![]() |
Gísli Marteinn: Milljarðar renna til manna sem stýrðu Framsóknarflokknum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.10.2007 | 10:56
Björn Ingi, við erum hér. Hvar ert þú?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
12.10.2007 | 00:44
Markaðsráðarnir fjórir: Verð - Vara - Kynning - Dreifing
Það er markaðslögmál númer eitt að maður stýrir sölu með því að hafa áhrif á markaðsráðana fjóra; verð, vöru, kynningu og dreifingu.
Á Íslandi er áfengisstefnan einmitt að þessu - bara í hina áttina - til minnkunar neyslu:
- Verð: Það eru himinháir skattar á áfengi.
- Vara: Vöruframboðið er tiltölulega takmarkað þótt það hafi nú batnað verulega.
- Kynning: Auglýsingar eru bannaðar.
- Dreifing: Það er einn aðili sem rekur Vínbúðir þannig að maður þarf alltaf að gera sér ferð til að ná sér í áfengi, það kemur ekki til manns þar sem maður er t.d. í matvörubúð að kaupa eitthvað allt annað.
Þessi áhersla hefur verið að virka því tölur sýna að áfengisneysla á Íslandi er minni en í þeim löndum sem við berum okkur saman við t.d. á Norðurlöndum - Sjá töflu.
Ég er hins vegar ekkert endilega á því að RÍKIÐ þurfi að reka þessar verslanir.
Ég tel því að það þurfi ekki að bera B þótt A sé gert. Það er mín skoðun að það eigi að afnema einkasölu ríkisins á áfengi og selja ÁTVR. Hins vegar er ég líka á þeirri skoðun að setja eigi í lög að sérstakur inngangur eigi að vera inn í sérstakar vínbúðir. Þar megi ekki selja annað en vín og að þú eigir alltaf að þurfa að gera þér ferð til að kaupa áfengi, það komi ekki til þín þar sem þú ert t.d. í matvörubúðinni eða sjoppunni að kaupa eitthvað allt annað.
Ef gos væri selt í sér verslunum þá er ég ekki í nokkrum vafa um að ég myndi drekka minna af gosi. Ég er alveg sannfærður um að verði áfengið flutt inn í matvöruverslanir mun neyslan aukast verulega eins og reyndar Þórólfur sagði í fréttinni eftir þeim rannsóknum sem gerðar hafa verið.
Það á við um alla markaðssetningu að bætt aðgengi leiðir til aukinnar neyslu sé eftirspurn eftir vörunni á annað borð.
Áfengi er ekki venjuleg vara. Við erum ekki að eyða milljörðum í endurhæfingu fólks sem hefur borðað of mikið af tómötum eða keypt of marga stóla. Áfengi er ekki venjuleg neysluvara þar sem ofneysla þess (sem er staðreynd hjá verulegum fjölda fólks) hefur verulega önnur áhrif á samfélagið en neysla á öðrum vörutegundum.
![]() |
Á að gefa bjór- og léttvínssölu frjálsa? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.10.2007 | 23:11
Björn Ingi minnkar völd sín - Stendur þó sterkari eftir en áður
Það eru allir að tala um að Björn Ingi hafi gert svo vonda hluti en fólk er nú ekkert mikið að lista upp hvað. Ég held að Björn Ingi hafi staðið sig ágætlega í borgarstjórnarstörfum sínum. Mistökin sem hann gerði í upphafi kjörtímabilsins voru hins vegar þau að selja sig of dýrt, fá 50% völd en eiga bara 6% stuðning. Það hefur hleypt illri umræðu í allt tengt Birni Inga og hann hefur ekki átt sér viðreisnar von í neinu sem hann hefur tekið sér fyrir hendur. Almenningur einfaldlega samþykkti ekki þessa skiptingu.
Núna stígur hann niður og fer í samstarf við þrjá aðra flokka. Það þýðir að völd hans þynnast úr því að vera 50% í 25-35% vægi í hópnum. Ég held að þetta valdaafsal geti komið honum vel og valdið því að hann fái meiri viðurkenningu á það sem hann gerir en áður þegar hann hafði ekki umboð til þeirra valda sem hann hafði tekið sér. Hann hefur verið talinn valdasjúkur og spilltur þess vegna. Það að hann skyldi afsala sér 50% væginu fyrir minni völd ætti að draga úr þeim orðrómi.
Það verður athyglisvert að fylgjast með borgarmálunum næstu vikur, bæði meirihlutanum og minnihlutanum. Ætli R-listinn nýi láti okkur bíða í önnur 12 ár eftir Sundabraut og ákvörðun um flugvöllinn?
11.10.2007 | 18:22
Hægt hefði verið að ná samkomulagi við Björn Inga ef hann hefði fallist á sjónarmið borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokks.
Hanna Birna sagði á fundinum að hægt hefði verið að ná samkomulagi við Björn Inga ef hann hefði fallist á sjónarmið borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokks.
Magnað! Kemur engum á óvart að Björn Ingi hafi látið þau flakka.
![]() |
Vilhjálmur: Ákvörðun Björns Inga um samstarfsslit fyrirvaralaus |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.10.2007 | 15:49
Það verður að stöðva þessa sölu - Þetta er versta ákvörðun sem stjórnmálamenn hafa tekið
Frábær pistill hjá Stefán Hafstein - stórmerkileg upptalning
http://stefanjon.blog.is/blog/stefanjon/entry/332758/#comment690467
![]() |
Orkulindirnar ekki endilega andlag einkavæðingar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.10.2007 | 16:59
Hverjum er ekki sama þótt borgarbúar tapi milljörðum meðan einn úr vinahópnum kemst í stjórn OR
Ef OR gengur út úr REI er ekkert eftir í REI, sameiningin við Geysir Green gengur einfaldlega til baka og eftir stendur einkafyrirtækið GGE eitt á sviðinu.
GGE hlýtur þá að kaupa lykilmenn úr REI og OR áður en borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja REI niður þar sem ekki er hægt að selja það. Það er ekkert eftir til að selja ef OR fer út úr dæminu. Það var þekking OR sem átti að selja.
Reykjavíkurborg sem eigandi OR missir af tækifæri á að hagnast um milljarða á því að nýta þá þekkingu sem byggð hefur verið upp.
...en það er allt í lagi því einn úr vinahópnum kemst í stjórn OR.
Þetta eru líklega skelfilegasta meðferð á valdi sem sést hefur í íslenskum stjórnmálum svo árum skipti.
![]() |
Stefnt að því að selja hlut Orkuveitunnar í REI |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.10.2007 | 16:29
Bjargar Björn Ingi íslensku orkuútrásinni?
Nú þegar Sjálfstæðismenn eru sprungnir á limminu og ætla að slátra lambinu ófæddu er eina vonin sú að Björn Ingi setji þeim stólinn fyrir dyrnar.
Ef OR fer út úr REI þá tapa Reykvíkingar milljörðum auk þess sem einkaaðilar kaupa lykilstarfsmenn út úr OR og gera þetta sjálfir. Þetta eru stórkostlegustu og dýrustu mistök sem stjórnmálamenn hafa gert á Íslandi lengi og verður vonandi til þess að þeir tapa næstu borgarstjórnarkosningum.
![]() |
Meirihlutinn í borgarstjórn fundar um niðurstöðu sjálfstæðismanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |