19.7.2007 | 17:37
Hvern er verið að vernda?
Út á hvað ganga þessi mál? Er þetta siðgæðismál, vinnuverndarmál, sakamál eða hvað? Hvað er verið að banna?
Ef þetta er siðgæðismál þá hlýtur dans í opnu rými að vera eins bannaður og í lokuðu rými.
Ef þetta er vinnuverndarmál þá hlýtur þetta að ganga út á að tryggja að viðskiptavinurinn geti ekki misnotað sér aðstöðu sína án þess að starfsmaðurinn geti kallað á hjálp.
Ef þetta er sakamál þá eru engin lög sem banna dans.
Reynslan sýnir hins vegar í öðrum löndum að svona starfsemi fylgja alls kyns vandræði og því má færa rök fyrir því að það séu raunverulegir hagsmunir samfélagsins að lögregla hafi aukið eftirlit með þessari starfsemi. Sú þörf virðist vera uppfyllt samkvæmt dómnum sem og vinnuverndarþörfin sem minnst var hér að ofan.
Er þá einhver ástæða til að vera að fetta fingur út í þetta?
![]() |
Eigandi Goldfinger og dansari á staðnum sýknuð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.7.2007 | 15:53
Umferð skipa í gegnum fiskimiðin
![]() |
Bæjarstjóri Ísafjarðar fylgjandi olíuhreinsistöð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.7.2007 | 15:49
Hvað ætli mörg þeirra séu með Ipod?
Mótmæla neyslumenningunni!
Hvað ætli mörg þeirra séu með Ipod?
Það er hins vegar gott að það sé til fólk sem er tilbúið að berjast fyrir einhverju svo lengi sem það heldur sig innan ramma laganna.
![]() |
Stóriðju og neyslumenningunni mótmælt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.7.2007 | 19:41
Höfuðstöðvar Alcoa til Íslands!
Fáum höfuðstöðvar Alcoa til Íslands. Gefum þeim vilyrði fyrir álverum við Húsavík, á Keilisnesi og í Helguvík (ef þeir eru að taka yfir Alcan) með því skilyrði að þeir flytji höfuðstöðvar sínar til Íslands.
Þá fáum við loksins þau störf sem við viljum fyrir álverin.
Hér eru lágir fyrirtækjaskattar, ágætt framboð á velmenntuðu starfsfólki, ágæt þekking á áliðnaði, góðar samgöngur við umheiminn, við erum staðsett mitt á milli Evrópu og Ameríku með beint flug til Evrópu, Ameríku og Kanada svo eitthvað sé nefnt. Á næstu tuttugu árum verður farið að fljúga yfir norðurpólinn og þá verðum við orðin miðdepill ferðalaga í þrjár áttir, mitt á milli Evrópu, Austur-Asíu og Ameríku. Alcoa eru að skoða álver á Grænlandi þannig að Ísland gæti að mörgu leyti hentað þeim ágætlega.
Bjóðum þeim þetta og hugsanlega fleiri stórfyrirtækjum. Byrjum þó á Alcoa og verum ekkert að leyfa þeim að reisa álver hérna fyrr en þetta er í höfn. Þá fáum við skatta af hagnaði Alcoa International. Við gætum ráðið nokkra hjúkrunarfræðinga fyrir það!
9.7.2007 | 17:43
Hvaðan kemur eiginlega allt þetta fólk?
Hvernig stendur á því að þegar markaðurinn hefur verið á fullu síðan 2004 og lengur og verð hækkað upp úr öllu valdi þá geti orðið hækkun upp á 71% fjölgun frá því í fyrra? Hvaðan kemur allt þetta fólk? Það hlýtur að þurfa að selja gömlu íbúðina? Ekki eru þetta all innflytjendur. Hvaðan kemur eiginlega allt þetta fólk?
Er fólk kannski að klára að kaupa til að nýta gömlu lánareglurnar meðan þær endast? Við sjáum hvort þetta dettur niður á næstu mánuðum eða hvort gullæðið heldur áfram.
![]() |
Kaupsamningar í júní 72% fleiri en í fyrra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.7.2007 | 16:26
Mikilvægt að ná sátt um aðferðafræðina
Það sem gerir þessa umræðu svo slæma er ekki niðurstaðan heldur sú staðreynd að það er ekki sátt um þá aðferðafræði sem er notuð hjá Hafró. Meðan menn treysta ekki mælitækinu þá verður aldrei sátt um útkomuna.
Ég held að það sé lykilatriði að Hafró hafi sjálfstraust til að leggjast yfir það mál með öllum sem að sjávarútvegnum koma, skýra þá aðferð sem nú er notuð ofan í kjölinn og kanna hvort einhver önnur betri er til í heiminum.
Það verður ekki fyrr en að lokinni þessari vinnu sem sátt verður um niðurstöðuna, hvort sem niðurstaðan er hátt eða lágt aflamark.
![]() |
Forseti FFSÍ lýsir yfir vonbrigðum með ákvörðun sjávarútvegsráðherra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.7.2007 | 15:47
Eins gott að Kristinn er ekki ráðherra!
"að hann hefði því talið farsælast að halda jafnstöðu næstu þrjú árin og hafa aflamark óbreytt á meðan unnið væri að frekari rannsóknum."
Annað hvort höfum við Hafró eins og hún er og förum eftir henni eða við breytum vinnubrögðum Hafró og förum eftir henni þá líka. Það er fáránlegt og fullkomlega óábyrgt að hafa Hafró en fara ekki eftir henni.
Ég tek ofan fyrir Einari K. og ríkisstjórninni að hafa haft dug í sér til að taka þetta erfiða skref.
Nú er bara spurning hvort ekki þurfi að gera svipaða hluti með loðnuna þar sem hún er helsta fæðutegund þorsksins.
![]() |
Kristinn H: Aukin hætta á brottkasti og svindli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.7.2007 | 12:49
Góður Óli!!!!
![]() |
Forsetaembættið fær nýjan bíl |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.7.2007 | 00:11
Erum við að selja þessa þekkingu?
Erum við að selja þessa þekkingu?
...eða erum við að gefa Indverjum hana? Getum við selt hana öðrum löndum svipað og þekkingu okkar á jarðhita?
![]() |
Skrifað undir samning við Indverja um jarðskjálftarannsóknir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.7.2007 | 20:22
Reykjanesbær hluthafi í Geysir Green Energy
![]() |
Reykjanesbær mun nýta forkaupsréttinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |